SolAz

Skotheldur skýjarekstur

Hafðu samband

Um okkur SolAz veitir sérsniðna Azure & AWS-sérfræðiráðgjöf til að styðja fyrirtæki í allri stafrænni umbreytingu þeirra.

Við hjálpum teymum sigla í gegnum flækjustig skýjaþjónustu með öryggi. Við vinnum náið með viðskiptavinum okkar hönnun, flutningi og rekstri öruggra og áreiðanlegra skýjaumhverfa, alltaf með langtímasamstarf leiðarljósi. Markmið okkar er einfalda flókin kerfi, styðja vaxandi teymi og tryggja skýjarekstur haldist stöðugur, skilvirkur og framtíðarfær.

Fyrir hverja?

Við vinnum með fjölbreyttum hóp viðskiptavina

Sprotafyrirtæki

Rekstur í Azure & AWS auðveldar samvinnu og gagnaskipti, og gerir sprotafyrirtækjum kleift að vaxa hratt og hagkvæmt — þegar byr kemur í seglin.

Upplýsingatækniteymi

Jafnvel hæfustu teymi þurfa ráðgjöf og aðstoð þegar kemur að stórum skýjaverkefnum. Við bjóðum þér Azure & AWS-sérfræðiþekkingu okkar til að létta byrðina og greiða úr flækjunni.

Stafræn umbreyting

Azure & AWS eru víðfeðm, flókin og í stöðugri þróun. Við hjálpum þér að sigla í gegnum það af öryggi — skref fyrir skref.

Frjáls félagasamtök

Microsoft Azure styður frjáls félög með styrkjum sem veita aðgang að öflugri skýjaþjónustu. Við hjálpum þinni stofnun að nýta þennan stuðning til fulls — svo tæknin verði ekki hindrun heldur tæki til að ná markmiðum.

Fyrirtæki sem treysta okkur

AQ Atlantsolía
HafnarfjörðurHafnarfjarðarbær
SeveUpTandurPaydayInkassoVeritasCranntechStraumlindAQ Atlantsolía
HafnarfjörðurHafnarfjarðarbær
SeveUpTandurPaydayInkassoVeritasCranntechStraumlind
Þjónusta

Þinn samstarfsaðili fyrir

  • kubernetes
  • skýjaflutning
  • innviðagreiningu
  • kostnaðarbestun
  • öryggisherðingu
  • gervigreindarlausnir
  • ut rekstur
  • skýjaarkitektúr
  • netkerfi
  • kubernetes
  • skýjaflutning
  • innviðagreiningu
  • kostnaðarbestun
  • öryggisherðingu
  • gervigreindarlausnir
  • ut rekstur
  • skýjaarkitektúr
  • netkerfi
Ferli
Teymið

Reynt teymi með sveigjanlega og þverfaglega nálgun

Gunnar Óttarsson

Gunnar Óttarsson

Azure sérfræðingur, netfræðingur

Með yfir 20 ára reynslu í upplýsingatæknigeiranum hefur Gunnar aðstoðað sveitarfélög, sprotafyrirtæki og fyrirtæki eins og Eimskip og Domino's við að nútímavæða Microsoft Azure umhverfi þeirra með auknu öryggi, betri áreiðanleika og marktækum sparnaði.

Í dag sameinar Gunnar djúpa sérfræðiþekkingu á netkerfum, Azure skýjaarkitektúr og Microsoft öryggi til að aðstoða fyrirtæki við að nútímavæðast og vaxa í skýinu.

Ólafur Magnússon

Ólafur Magnússon

AWS sérfræðingur

Ólafur hefur leitt stórfelld innviðaverkefni sem tæknistjóri hjá Asana, þar sem hann byggði upp Kubernetes umhverfi fyrir fjölda teyma og keyrði áfram hagræðingarherferð í UT innviðum fyrirtækisins, og býr þannig að verklegri reynslu í skýjainnviðum, dreifðum kerfum og uppbyggingu afurða sem skalast.

Hann er einnig meðstofnandi Tímaveru, SaaS vöru sem hefur vaxið í yfir 400 virk fyrirtæki.

CCNP CertifiedAzure Solutions Architect Expert

Reynsla okkar er studd viðeigandi vottunum sem staðfesta fagmennsku okkar og sérfræðiþekkingu.

Umsagnir
Michael Murphy

Michael Murphy

Forstjóri og meðstofnandi, Cranntech

„Hjá SolAz starfa afar hæfir, vottaðir Azure sérfræðingar sem búa yfir mjög breiðri þekkingu á netbúnaði, skýjaumhverfi og öryggislausnum. Það kom okkur á óvart hversu mikil reynsla bjó hjá fremur smáu teymi SolAz sem gat leyst ólíkustu vandamál á stuttum tíma.“

Björn Hr. Björnsson

Björn Hr. Björnsson

Forstjóri og stofnandi, Payday

„Það var mikið heillaskref hjá okkur að fá SolAz með okkur í lið í byrjun 2023. Payday hefur vaxið hratt síðastliðin ár og Azure umhverfið samhliða því. Það var kominn tími til að fá sérfræðinga til að hjálpa okkur að taka umhverfið á næsta stig. SolAz hefur á að skipa frábærum sérfræðingum sem eru fljótir að bregðast við og hafa mikla þekkingu á Azure umhverfinu.“

Eymundur Björnsson

Eymundur Björnsson

Upplýsingatæknistjóri, Hafnarfjörður

„SolAz hefur veitt Hafnarfjarðarbæ framúrskarandi ráðgjöf í tengslum við Azure innviði, öryggisþætti og bestun innviða í Microsoft vistkerfinu. SolAz hefur jafnframt verið okkur mikilvægur ráðgjafi við greiningu á tæknilegum þáttum í samningaviðræðum við verktaka um hugbúnaðarþróun.“

Gunnar Einarsson

Gunnar Einarsson

Yfirtæknistjóri og meðstofnandi, Straumlind

„SolAz studdi Straumlind við uppsetningu Azure umhverfisins og kom á fót öruggri og skalanlegri grunnuppbyggingu, meðal annars með Azure Landing Zone, og tryggði að við værum alltaf í samræmi við bestu öryggisstarfsvenjur í skýjaþjónustu. Þjónusta þeirra tryggir að tæknilegt umhverfi okkar byggi á traustum og öruggum grunni. Við mælum eindregið með SolAz.“

Hilmar Örn Gunnarsson

Hilmar Örn Gunnarsson

Kerfisstjóri, Veritas

„SolAz hefur verið traustur samstarfsaðili fyrir Veritas, einkum í verkefnum þar sem öryggi og stöðugleiki upplýsingatæknikerfa skipta máli. Samstarfið hefur beinst að greiningu og útfærslu tæknilegra lausna tengdum Azure með áherslu á örugga uppbyggingu, áhættuminnkun og vandað val tæknilegra leiða.“